Sunnudaginn 15. mars verður samkoma á Holtavegi 28 kl. 20. Yfirskrift samkomunnar er „En Guð gaf vöxt“. Samkoman er lokasamkoma kristniboðsviku SÍK og afmælishátíð Kristniboðssambandsins. Þáttur um 80 ára sögu Kristniboðssambandsins. Elizabeth Lowe verður með þátt um Kína. Hugleiðing: Jónas Þórisson. Keith Reed og kór Lindakirkju taka þátt .
Afmæliskaffi eftir samkomu. Bókaborð.
Allir eru hjartanlega velkomnir!