Eyðublaðið hér fyrir neðan er aðeins ætlað þeim sem hyggjast sækja um dvöl fyrir barn í Stelpum í stuði í Ölveri. Stelpur í stuði er sumarbúðaflokkur fyrir 10-12 ára stúlkur með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.

Skráning í aðra flokka í Ölveri er á www.sumarfjor.is.

Um Stelpur í stuði

Sumarbúðirnar í Ölveri bjóða uppá sumarbúðir fyrir 10-12 ára stúlkur með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Að þessu sinni verður flokkurinn Stelpur í stuði 6.-9. júní 2024. Skráningarform fyrir flokkinn er hægt að nálgast hér fyrir neðan frá og með 5. mars kl. 13:00.

Markmið Stelpna í stuði

Markmiðið með Stelpum í stuði er að bjóða stúlkum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir velkomnar í sumarbúðir þar sem þörfum þeirra verður mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt.

Aðstaðan í Ölveri

Ölver er frábær staður fyrir kraftmiklar og vaskar stúlkur. Þar lítil íþróttaskemma, fótboltavöllur, frábærar gönguleiðir, ævintýralegur skógur og margt fleira. Dagskráin í Ölveri er fjölbreytt og samanstendur af frjálsum dagskrártilboðum, kvöldvökum, kristinni fræðslu, söng, mikilli útiveru og reglulegum matartímum. Dagsskipulag Ölveri er afar heppilegt fyrir stúlkur með ADHD vegna þess að ramminn er skýr, þau hafa sitt sæti við sitt borð í matsalnum og hafa hver sína bænakonu/umsjónarkonu í svefnsal og herbergjum. Matartímar eru mjög reglulegir. Fjölmörg tilboð um viðfangsefni sem mæta ólíkum áhugasviðum. Mun fleiri starfsmenn verða í þessum flokk en í hefðbundnum flokkum og því auðveldara að mæta hverri og einni á hennar forsendum.

Umsóknir

Fyrirkomulag á skráningu í Stelpur í stuði (og Gauraflokki í Vatnaskógi) er þannig:

1. Sótt er um dvöl á heimasíðu KFUM og KFUK hér fyrir neðan eftir að sumarbúðaskráning opnar.  Farið verður yfir umsóknir í þeirri röð sem þær berast og með hliðsjón af markhópi Stelpna í stuði. Öllum umsóknum verður svarað.

2. Forsvarsmenn flokksins yfirfara umsóknir og síðan er haft samband við foreldra þar sem þeim er tilkynnt hvort barnið þeirra kemst í flokkinn eða ekki.

3. Barnið skráð í flokkinn.

Gert er ráð fyrir að taka á móti 15-20 stúlkum í flokkinn.

Brottför – heimkoma

Farið er frá húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28, kl. 10:00 og heimkoma á sama stað um kl. 14:00 (annar heimkomutími en í hefðbundnum flokkum).

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið í Ölveri má fá í síma 588-8899.

Umsókn um þátttöku í Stelpum í stuði.

Eyðublaðið hér fyrir neðan er aðeins ætlað þeim sem hyggjast sækja um dvöl fyrir barn í Stelpum í stuði í Ölveri. Stelpur í stuði er sumarbúðadvöl fyrir 10-12 ára stúlkur með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Skráning í aðra flokka í Ölveri er á www.sumarfjor.is.


Vinnulag KFUM og KFUK varðandi persónuverndarupplýsingar.