Héðan úr Vatnaskógi er allt gott að frétta.
Veðrið hefur leikið við okkur og er mikil gleði í hópnum. Það er kúnst að fá 104 drengi til að borða hljóðlega eða hlusta allir á sama tíma. Það getur því stundum verið dálítill hávaði í matartímum og á samverum. Sumum finnst hávaðinn erfiður og reynum við því að láta matartímana líða hratt. Almennt gengur flestum drengjunum vel og koma þeir vel fram hver við annan. Fyrirmyndarpiltar sem foreldrarnir geta verið stoltir af!
Dagskráin er fjölbreytt sem fyrr og geta drengirnir valið úr ýmsum dagskrárliðum. Í gær var boðið upp á gönguferð út í Oddakot, litla sandströnd sem við höfum hér við Eyrarvatn. Þar gátu drengirnir vaðið langt út í vatn og skemmt sér konunglega. Fótboltinn hélt áfram ásamt frjálsum íþróttum, þar sem boðið var upp á langstökk og í dag verður 400 metra hlaup og spjótkast. Kvöldvakan var hress og skemmtileg að vanda en eftir hana var farið í kvöldkaffi. Hér er bókstaflega keppt í öllu meira að segja hegðun og biblíuþekkingu en á veisludegi fer fram biblíuspruningarkeppni á milli hópa. Hegðunarkeppnin er á milli borða og eru veitt stig fyrir umgengni í svefnsölum, framkomu í matsal og þess háttar. Í gær fóru nokkur mót fram m.a. skákmót, borðtennismót og þythokkímót. Listakeppnin er í fullum gangi og þegar er búið að skila inn nokkrum tímamótaverkum.
Í gær fengum við kvöldkaffi eftir kvöldvöku kl. 21.30 og komin var ró um kl. 22.30 sumir þurftu að vísu lengri tíma til að sofna.
Það er skemmtilegt að segja frá því að skv. lögum Skógarmanna er hver sá sem hefur dvalið 2 nætur í dvalarflokki í Vatnaskógi Skógarmaður. Þeir dregnir sem eru að koma í fyrsta sinn eru því orðnir Skógarmenn og eru þar með komnir í hóp með á þriðja tug núlifandi Íslendinga.
Bestu kveðjur úr Vatnaskógi!
Jón Ómar Gunnarsson og Þráinn Haraldsson, forstöðumenn.
Símatími er frá 11-12, og hægt að hafa samband þá í síma 433 8959, einnig er hægt að senda tölvupóst á jon.omar.gunnarsson(hjá)gmail.com.
Myndir munu birtast síðar í vikunni hér á myndasvæði KFUM og KFUK á Íslandi.