Sælt veri fólkið.  Vonandi hafa allir séð myndirnar sem birtust seint í gærkvöldi.  Von er á fleiri myndum í kvöld.  Veðrið leikur ennþá við okkur.  Drengirnir sváfu vel í nótt enda mun þreyttari heldur en fyrsta kvöldið.  Það er mikill kraftur í hópnum en einnig gleði.  Margir eru að stíga stór þroskaskref og vinna mikla sigra á sjálfum sér með því að dveljast í fyrsta sinn hjá öðrum en fjölskyldu.  Við gerum það sem við getum til að þeir finni til öryggis.  Stundum er dvöl í sumarbúðum erfiðari fyrir foreldra, einkum mæður :), heldur en drengina sjálfa.  Í dag var m.a. farið í Oddakot sem er baðströnd Skógarmanna, austast í vatninu.  Þar er svartur sandur og vatni grunnt langt út svo auðvelt er að hlaupa í flæðamálinu eða grafa sig í sandinn.  Sumir gengu svokallaðan efri skógarstíg sem er falleg leið í gegnum skóginn.  Hún endar hjá klettum skammt frá Oddakoti.  Eins var stór hópur sem tók þátt í fjársjóðsleit.  Það var einskonar ratleikur með nokkrum liðum.  Mikil spenna var í þessum leik.  Smíðastofan heillar marga, hún er einföld og miðast einkum við að vinna með efni sem fellur til úr skóginum.  Frjálsar íþróttir og fótbolti trekkja alltaf að.  Kassabílarallý var í gær og tóku margir þátt í því.  Úrslitakeppnin var háð í gærkvöldi og fylgdust allir með og hvöttu keppendur til dáða.  „Mótorarnir“ tóku á öllu sínu og gáfu ekkert eftir enda búnir á því þegar keppni lauk.  Framundan er kvöldvaka með miklum söng. Í dag er stór dagur fyrir þá drengi sem eru að koma í fyrsta sinn í flokk í Vatnaskógi.  Þeir hafa nú gist í tvær nætur í flokki á vegum Skógarmanna KFUM og þá eru þeir orðnir Skógarmenn.  Þar með bætast þeir í hóp u.þ.b. 20.000 (tuttuguþúsund) núlifandi Skógarmanna.  Margir drengjanna eiga feður, afa og jafnvel langafa sem dvalið hafa hér.  Sumir feður, sem ekki höfðu kost á að dvelja hér sem drengir, syrgja þann kafla æsku sinnar 🙂 …. en þið getið huggað ykkur við það að í haust er boðið uppá feðgahelgi og eins karlaflokk fyrir 18 ára og eldri.  Þá má minna á fjölskylduhelgi um miðjan júlí sem er nýbreyttni.  Gott í bili.

Kær kveðja,

Sigurður Grétar