KFUM og KFUK á Íslandi er hluti af alþjóðahreyfingu KFUM og KFUK félaga (e. YMCA og YWCA). Félagið tekur þátt í margvíslegu alþjóðlegu samstarfi á vettvangi KFUM og KFUK, bæði á Norðurlöndum, í Evrópustarfi og á Heimsvísu. Þá hefur KFUM og KFUK á Íslandi tekið þátt í samstarfi við ýmsa aðra hópa og félög víða um heim.
Norrænt samstarf
Norrænu KFUM og KFUK félögin starfa saman á margvíslegan hátt enda eru aðstæður á Norðurlöndunum oft sambærilegar.
Norrænn formanna og framkæmdastjórafundur.
Árlega hittast formenn og framkæmdastjórar KFUM og KFUK félaga á Norðurlöndunum á fundi. Þar eru fluttar skýrslur félaganna, sameiginleg málefni rædd og stoðir norræns samstarfs styrktar.
Nordisk börn kommite (NBK)
Samráðsvettvangur norrænu KFUM og KFUK félaganna, fjallað er um norrænt æskulýðsstarf, helstu verkefni og ýmis málefni sem varða börn og unglinga. NBK skipuleggur einnig Norræna mótið (Nordisk lejr).
Norræna mótið (Nordisk lejr)
Norræna mótið er haldið annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum. Norræna mótið var haldið í Færeyjum í júlí 2009 og í Danmörku árið 2011 (myndir). Fyrsta mótið var haldið árið 1939, þannig að árið 2009 var haldið upp á 70 ára afmæli mótsins. Norrænu mótin eru fyrir 11-16 ára unglinga. Þau eru byggð á þeirri hugmynd að kynnast öðrum sem tala annað tungumál og eru frá annari menningu en hafa rætur í sömu sögu. Unglingarnir læra mjög hratt og blandast vel saman. Oft hafa unglingar jafnvel tengst vináttuböndum þvert yfir öll landamæri. Meðal dagskrárliða á norrænum mótum má nefna: Íþróttir, gönguferðir, fræðslustundir, kvöldvökur, sundferðir, dagsferð, næturleik og margt fleira spennandi.
Evrópusamstarf
KFUM og KFUK á Íslandi er fullgildur aðili að KFUM í Evrópu, regnhlífasamtökum KFUM félaga á Evrópusvæðinu. Mikið og líflegt samstarf er meðal Evrópsku félaganna og tekur íslenska félagið virkan þátt í þeirri vinnu. Þessi verkefni eru helst:
- Aðalfundur KFUM í Evrópu. Aðalfundurinn er haldinn árlega ýmist í ákveðnu aðildarlandi eða í Kennslumiðstöð KFUM sem staðsett er í Litomysl í Tékklandi. Á aðalfundinum er fjallað um þætti sem snerta öll aðildarfélögin, línur eru lagðar í sameiginlegu starfi og kosið er til stjórnar samtakanna. Samhliða aðalfundinum funda framkvæmdastjórar félaganna, vinnuhópar og ungmennaráð (Yes group).
- Yes Group er n.k. ungmennaráð KFUM í Evrópu. Yes group hefur það að markmiði að tryggja að sjónarmið ungs fólks sem tekur þátt í starfi KFUM félaga í Evrópu komi fram á aðalfundinum. Yes group vinnur líka að því að stuðla að nánara samstarfi ungmenna í ólíkum KFUM félögum í Evrópu.
- Field Group Ukraine er stuðningshópur eldri KFUM félaga við KFUM í Úkraínu sem er tiltölulega ungt félag. KFUM í Úkraínu er enn að festa sig í sessi og aðstæður í landinu eru erfiðar fyrir félagsstarf. Þær sömu aðstæður gera það að verkum að gríðarleg þörf er fyrir félagsstarf eins og KFUM.
- Jól í skókassa er samstarfsverkefni við KFUM í Úkraínu. Hópur ungmenna innan KFUM og KFUK, biblíuleshópurinn Bleikjan, hefur umsjón með verkefninu sem hefur verið haldið árlega síðan 2004. Verkefnið felur það í sér að safna jólagjöfum í skókössum sem síðan eru sendir til Úkraínu og gefnir munaðarlausum börnum. Meðlimir Bleikjunnar fylgja sjálfir kössunum eftir í hendur barnanna en KFUM í Ukraínu skipuleggur dreifingu kassanna.
- Prag 2013. Evrópumót KFUM verður haldið í Prag 2013 í þriðja sinn. Evrópumótin hafa verð haldin á fimm ára fresti og eru þau fyrst og fremst til að fagna öllu því frábæra starfi sem unnið er á vegum KFUM í Evrópu. Þar koma saman ungmenni frá ólíkum löndum Evrópu og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Evrópumótin eru einstök upplifun. Rúmlega 120 manna hópur fór frá Íslandi á síðasta Evrópumót 2008.
Evópusamband KFUK
KFUM og KFUK á Íslandi er ekki fullgildur aðili að KFUK í Evrópu en hefur áheyrnaraðild að félaginu. Félagar í KFUM og KFUK á Íslandi sækja ýmsa viðburði á vegum sambandsins.
- KFUK námskeið í Búdapest. Árlega eru haldin námskeið fyrir ungar konur á vegum Evrópusambands KFUK. Námskeiðin fara fram í ungmennahúsinu í Búdapest og fjalla um ýmis málefni s.s. HIV/aids, kraft kvenna, samkirkjulegar samræður og fleira.
Alheimssamstarf
KFUM og KFUK á Íslandi er fullgildur aðili að Heimssambandi KFUK. Meðal þeirra verkefna sem félagið tekur þátt í á vegum sambandsins er alþjóðleg bænavika KFUM og KFUK og aðalfunda sambandsins.
KFUM og KFUK á Íslandi er ekki fullgildur aðili að Heimssambandi KFUM en hefur þó áheyrnaraðild að félaginu. KFUM og KFUK á Íslandi tekur þátt í alþjóðlegu bænavikunni sem sambandið skipuleggur í samstarfi við Heimssamband KFUK. KFUM og KFUK á Íslandi er einnig boðið að senda fulltrúa á Heimsþing KFUM sem haldin eru á fjögurra ára fresti.
Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi
Innan KFUM og KFUK á Íslandi starfar Alþjóðaráð sem hefur neðangreind markmið.
- Skilgreina þá starfsemi innan KFUM og KFUK sem fellur undir Alþjóðaráð.
- Efla starf KFUM og KFUK á Íslandi á alþjóðavettvangi með því að taka þátt í námskeiðum, ráðstefnum og öðrum verkefnum sem bjóðast.
- Auglýsa það sem í boði er fyrir félagsmenn og fá fólk á námskeið og aðra viðburði.
- Skapa tækifæri með umsóknum um styrki fyrir einstök verkefni (Æskulýðssjóður, Evrópa Unga Fólksins o.fl.).
- Velja verkefni sem eru þýðingarmikil fyrir félagið og varða hluta af starfsemi þess.
- Stuðla að betri miðlun þeirrar þekkingar sem fæst.
- Sjá til þess að þátttakendur á ráðstefnum/námskeiðum á vegum félagsins fylli út matsblað þar sem þeir segja frá því hvers þeir hafa orðið vísari og hvernig það gæti komið félaginu til góða.
- Gera alþjóðlegt starf félagsins aðgengilegt almennum félagsmönnum og auka þannig meðvitund fólks um að félagið er hluti af stærri heild á heimsvísu.
- Kynna alþjóðaráð með þátttöku í leiðtogaþjálfun á vegum félagsins.
- Auka upplýsingar á heimasíðu.
Fyrir þátttakendur í alþjóðastarfi KFUM og KFUK
Hópar
Ýmsir hópar fara út á vegum KFUM og KFUK til að taka þátt í mótum og ýmsum viðburðum. Oftast eru slíkar ferðir skipulagðar af leiðtogum hópanna sem fara út. Af og til eru haldnir opnir viðburðir þar sem allir geta tekið þátt en gott dæmi um það eru Evrópumótin í Prag. Hafðu samband við KFUM og KFUK hafir þú áhuga á að taka þátt í móti á vegum félagsins.
Einstaklingar
Á hverju ári sendir KFUM og KFUK aðila út til að taka þátt í námskeiðum eða ráðstefnum fyrir hönd félagsins. Hafir þú áhuga á að vera fulltrúi KFUM og KFUK í ákveðnu verkefni getur þú sótt um það með því að hafa samband við Alþjóðaráð.
Matsblað vegna utanferðar
Í hvert sinn sem einstaklingur fer utan sem fulltrúi KFUM og KFUK á Íslandi þá ber þeim einstaklingi að fylla út matsblað. Hægt er að fylla út matsblaðið á slóðinni www.kfum.is/um-kfum-og-kfuk/erlent-samstarf/matsblad-vegna-utanferdar/. Matsblaðinu skal skila til alþjóðaráðs fljótlega eftir heimkomu.

