Hólavatn

Sumarbúðirnar Hólavatni eru staðsettar innarlega í Eyjafirði í fallegu umhverfi. Dagskráin er fjölbreytt, skemmtileg og hver dagur endar á kvöldvöku þar sem allir fá að taka virkan þátt. Lögð er áhersla á vináttu, sköpunargleði og traust og að hvert barn vilji koma aftur og aftur á Hólavatn.

Fagurt umhverfið gefur kost á hollri útivist og að sjálfsögðu hefur Hólavatnið sjálft upp á ýmsa töfrandi kosti að bjóða, svo sem hressandi bátsferðir, stangveiði og baðstrandarlíf á heitum dögum. Þá eru ýmsar íþróttir stundaðar af kappi á staðnum, farið í hópleiki og gjarnan litið við á bóndabæ í nágrenninu til að kynnast störfum í sveitinni. Á Hólavatni fer fram fræðsla um kristna trú á hverjum degi. Oft er sungið við raust og hver dagur endar með kvöldvöku þar sem saman fer gaman og alvara.

Skálinn er á tveimur hæðum. Á efri hæð er eldhús, borðsalur og starfsmannaherbergi. Á neðri hæð eru tveir svefnsalir með gistirými fyrir 24 börn, salernisaðstaða, búr og geymsla.

Hólabær er starfsmannabústaður með tveimur herbergjum.

Í hverjum flokki dvelja 24-28 börn. Þau börn sem koma með flugi eru sótt á flugvöllinn.

Print Friendly