Lúk 4.1-13

… Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Andinn leiddi hann og í fjörutíu daga var hann í eyðimörkinni þar sem djöfullinn freistaði hans. Ekki neytti hann neins þá daga og er þeir voru liðnir var hann hungraður.

En djöfullinn sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá bjóð þú steini þessum að hann verði að brauði.“

Og Jesús svaraði honum: „Ritað er: Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði.“

Þá fór hann með hann upp og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldar. Og djöfullinn sagði við Jesú: „Þér mun ég gefa allt þetta veldi og dýrð þess því að mér er það í hendur fengið og ég get gefið það hverjum sem ég vil. Ef þú fellur fram og tilbiður mig skal það allt verða þitt.“

Jesús svaraði honum: „Ritað er:

Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja
og þjóna honum einum.“

Þá fór djöfullinn með hann til Jerúsalem, setti hann á brún musterisins og sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá kasta þér hér ofan því að ritað er:

Hann mun fela englum sínum að gæta þín

og:

þeir munu bera þig á höndum sér,
að þú steytir ekki fót þinn við steini.“

Jesús svaraði honum: „Sagt hefur verið: Þú skalt ekki freista Drottins, Guðs þíns.“

Þegar djöfullinn hafði gefist upp við að fella hann vék hann frá honum að sinni.

Hugleiðing

Jesús varð fyrir freistingum. Vitið þið öll hvað freistingar eru? Getið þið nefnt dæmi um freistingar sem þið verðið fyrir?

Freistingarnar sem Jesús varð fyrir eru um margt kunnuglegar. Fyrst er honum freistað með mat þegar hann er svangur. Ef hann bara gerir smá rangt þarf hann aldrei að vera svangur.

Svo er honum freistað með peningum og völdum. Ef hann bara gerir smá rangt getur hann eignast allan heiminn og gert hvað sem hann vill.

Að lokum er honum freistað til að sigrast á dauðanum. Ef þú óhlýðnast Guði einu sinni, þarftu aldrei að hafa áhyggjur af neinu aftur.

Jesús vissi sem var að ef hann féll fyrir freistingunum, þá yrði aldrei aftur snúið. Hann væri ekki lengur án syndar, hann myndi missa allan trúverðugleika og næst þegar freistingar kæmu yrði enn auðveldara að falla fyrir þeim.

Margir falla í þá gryfju að gera bara smá vitleysu, reyna síðan að ljúga sig út úr henni og falla enn dýpra.

Jesús stóðst próf freistinganna og vill hjálpa okkur að gera það líka.

Bæn

Jesús, leið oss frá freistni og hjálpaðu okkur að forðast það sem er rangt. Guð, fyrirgefðu okkur, þegar okkur verður á og hjálpaðu okkur að viðurkenna mistök okkar. AMEN.