Lúk 10.25-37

Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista Jesú og mælti: „Meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“

Jesús sagði við hann: „Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?“

Hann svaraði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig.“

Jesús sagði við hann: „Þú svaraðir rétt. Ger þú þetta og þú munt lifa.“

En lögvitringurinn vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: „Hver er þá náungi minn?“

Því svaraði Jesús svo: „Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona. Svo vildi til að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn en sveigði fram hjá. Eins kom og Levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá. En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum og er hann sá hann kenndi hann í brjósti um hann, gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann. Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meira til skal ég borga þér þegar ég kem aftur.

Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni sem féll í hendur ræningjum?“

Hann mælti: „Sá sem miskunnarverkið gerði á honum.“

Jesús sagði þá við hann: „Far þú og ger hið sama.“

Hugleiðing

Þeir sem höfðu mest völd á tíma Jesús, voru ekki alltaf glaðir með það sem Jesú kenndi. Þeim fannst nefnilega að það ættu ekki allir að vera jafnir og með jafnan rétt. Þeim fannst að sumir væru betri en aðrir og ættu þess vegna skilið að hafa það betra en aðrir. Þessir sumir voru líka oftast vinir þeirra sem réðu.

Þegar lögvitringurinn byrjar að tala við Jesús, þá er hann að reyna að plata Jesús til að segja einhverja vitleysu, svo lögvitringurinn geti sagt: „Sjáið þennan Jesús, hann svaraði spurningunni minni vitlaust, það er ekkert að marka hann.“

Jesús snýr hins vegar spurningunni á haus og lætur lögvitringinn svara spurningunum sjálfan. Síðan segir Jesús söguna af miskunnsama Samverjanum, sögu sem kennir okkur að þeir sem finnst þeir betri en aðrir, presturinn og levítinn, gera ekki alltaf allt rétt. Það sem meira er, Samverjinn, manneskja sem lögvitringnum fannst ómerkilegur, en Ísraelsmenn höfðu mikla fordóma gagnvart Samverjum er manneskjan sem gerir rétt. Sagan kennir okkur að allir geta ákveðið að gera rangt, allir geta ákveðið að gera það sem rétt er.

Spurning

Hægt er að virkja börn og unglinga til að hugsa um söguna á ferskan hátt með spurningunni: Hver ert þú í sögunni og af hverju?

Bæn

Góði Guð. Kenndu okkur að gera rétt. AMEN.