Það er stundum þannig að textar dægurlaga geta fengið aðra merkingu ef maður leyfir sér að setja pælingar um Guð og tilvist hans í samhengi við textann. Í lagi Charlie Puth frá 2015, One Call Away, er sungið til fjarlægs vinar sem lagahöfundur vill minna á að hann sé aðeins einu símtali í burtu.

Hins vegar gengur það upp að hlusta á textann með því hugarfari að það sé Jesús sem segir þessi orð til þín.

Hér er útgáfa af myndbandinu þar sem textinn birtist á skjánum.

https://youtu.be/Zjd6CmFEsKE

Textinn og hugleiðing sem hægt er að styðjast við er svo hér fyrir neðan.

I’m only one call away
I’ll be there to save the day
Superman got nothing on me
I’m only one call away

Jesús Kristur er bara einni bæn í burtu. Hann vill koma okkur til hjálpar þegar við köllum á hann.

Call me, baby, if you need a friend
I just wanna give you love
C’mon, c’mon, c’mon
Reaching out to you, so take a chance

Ef þú ert að leita að traustum vini, þá er Jesús sá besti vinur sem hægt er að eiga og hann þráir það eitt að gefa okkur ást og kærleika. En við þurfum að teygja okkur í átt til hans. Við þurfum að gefa því séns að leita til hans og leyfa honum að hafa áhrif í lífi okkar.

No matter where you go
You know you’re not alone

Hvar sem þú ert, máttu vita að þú ert ekki einn. Og það er fyrirheit sem Jesús hefur gefið í sínu orði. Í Matteusarguðspjalli 28. kafla og 20. versi segir: Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.

I’m only one call away
I’ll be there to save the day
Superman got nothing on me
I’m only one call away

Já aðeins einni bæn í burtu.

Come along with me and don’t be scared
I just wanna set you free
C’mon, c’mon, c’mon
You and me can make it anywhere
For now, we can stay here for a while
‘Cause you know, I just wanna see you smile

Hann kallar okkur til fylgdar við sig og við þurfum ekkert að óttast því hann vill frelsa okkur. Með Guði eru okkur allir vegir færir og hann fer ekki með okkur lengra en við treystum okkur og hann þráir að sjá okkur brosa. Í Jeremía 11.29 segir: Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.

No matter where you go
You know you’re not alone

I’m only one call away
I’ll be there to save the day
Superman got nothing on me
I’m only one call away

And when you’re weak I’ll be strong
I’m gonna keep holding on
Now don’t you worry, it won’t be long
Darling, and when you feel like hope is gone
Just run into my arms

Og þegar þig skortir styrk þá vill Jesús vera sterkur fyrir þig. Hafðu ekki áhyggjur og ef þú missir vonina máttu hlaupa í faðm Jesú. Guð er bara einni bæn í burtu og þráir að vera okkar besti vinur og frelsari sem þekkir okkur og vill gefa okkur kærleika og fylla líf okkar gleði. Amen

I’m only one call away
I’ll be there to save the day
Superman got nothing on me
I’m only one, I’m only one call away
I’ll be there to save the day
Superman got nothing on me
I’m only one call away

I’m only one call away

 

Hér er svo hægt að finna hljómana fyrir þá sem vilja læra að spila lagið og láta unglingana syngja þettta 😉

https://tabs.ultimate-guitar.com/c/charlie_puth/one_call_away_crd.htm