Hér er að finna Powerpoint kynningu á hjálparstarfsverkefninu Ull fyrir kalda sem lagt er til að verði kynnt síðustu vikuna í janúar 2014 í deildarstarfi KFUM og KFUK. Um er að ræða verkefni sem snýr að því að fá vini og vandamenn til að prjóna ullarsokka, vettlinga, húfur eða trefla handa börnum sem búa á munaðarleysingjaheimili í Síberíu.

Síðustu skil eru 1. júní en mælst er til þess að flestir reyni að skila inn prjónavörum í síðasta lagi á seinasta fundi vormisseris.

Ull fyrir kalda