Fyrirtækið Rekstrarvörur (www.rv.is) býður upp á fjölbreytt vöruúrval af hvers kyns vörum sem má selja í fjáröflunarskini. Þar má nefna salernispappír, þrifefni, þvottaduft, poka og kaffi. Hægt er að nálgast upplýsingar um fjáröflunarvörur frá Rekstrarvörum á slóðinni http://www.rv.is/?obj=sidan&id=898&uid=12,898.

Mikilvægt er að skipuleggja sölufjáröflun vel og halda utan um vörusölu hvers og eins þátttakanda.

Í upplýsingabæklingi frá Rekstrarvörum er sérstaklega bent á hættuna á að úthluta vörum vitlaust og undirbúa ekki með fullnægjandi hætti hver hefur pantað hvað. Fjáröflunarsala miðast við að allar útteknar vörur séu staðgreiddar.