Hægt er að styðja við verkefnið með fjárframlagi með því að leggja inn á reikning 117-26-100000, kennitalan er 690169-0889
„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.
Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM & KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Undirtektirnar voru frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram að spyrjast út og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala hefur síðan tvöfaldast því undanfarin ár hafa borist í kringum 5000 gjafir.
Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy sem komið hefur hingað til lands í heimsókn og m.a. kynnt sér starf KFUM og KFUK hér á landi. Hann starfar með KFUM í Úkraínu og er sjálfboðaliðum KFUM og KFUK innan handar þegar þau hafa farið til Úkraínu með gjafirnar.
Tekið er á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00 – 16:00 og á föstudögum frá 8:00 – 15:00 fram að síðasta skiladegi. Allar upplýsingar um móttökustaði og síðustu skiladaga er hægt að finna á síðunni undir „Móttökustaðir“ .
Ef hópar ætla að mæta á Holtaveg og afhenda skókassa þá er gott að hringja í síma 588 8899 og láta vita.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu KFUM og KFUK í síma 588 8899, á þessari heimasíðu, með því að senda tölvupóst á [email protected] og svo er verkefnið einnig með síðu á Fésbókinni.
Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð.
Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Hér til hægri á síðunni (útprentanlegt efni) má finna tilbúinn merkimiða. Klippið miðann út, merkið við réttan aldursflokk og límið ofan á skókassann. Einnig er hægt að útbúa sína eigin merkimiða og merkja aldur og kyn á þá.
Setjið 500-1.000 krónur efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann.
Gjafir í skókassana
Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:
Hvað má ekki fara í skókassana?
Athugið!
Ef þú vilt getur þú sett mynd af þér ásamt nafni og heimilisfangi og/eða netfangi efst í skókassann. Það gefur viðtakanda skókassans möguleika á að setja sig í samband við þig. Þannig geta myndast vinatengsl sem varað geta lengi.
Stuðningur við verkefnið
Með þínu framlagi tryggir þú að barn, sem annars fengi ekki jólagjöf, fái gjöf sem færir því gleði, von og hinn raunverulega boðskap jólanna, kærleika Jesú Krists.
Já, það má gera kassa fyrir yngri börn. Fyrir 0-1 árs er áherslan lögð á föt og hreinlætisvörurnar (þvottapoka, sápu, tannbursta og tannkrem og jafnvel snuddur) og svo eitthvert leikfang og smá nammi (sem hentar litlum börnum). Fyrir 1-2 ára er hægt að gera eins og hina kassana. Einnig má koma með hluti og við látum þá fylgja með t.d. heimaprjónaða sokka sem passa fyrir yngri börn og þá er þeim gefið sem þurfa.
Við mælum með vetlingum, sokkum, húfum, treflum, nærfötum, peysum og bolum.
Þrautir, tafl, reiknivélar, jójó, litlir boltar, frisbí, seðlaveski, lyklakippur, úr.
Já, kössunum er vel fylgt eftir. Farið er yfir alla kassa og þeir settir í gáma. Eimskip flytur gámana. Íslenskir sjálfboðaliðar fara á eigin kostnaði og fylgja kössunum eftir og afhenda börnunum þá.
Í fyrra komu fæstu kassar til 11-14 ára
Eftir 19. september er fólk velkomið að koma með kassa á Holtaveg.
Á höfuðborgasvæðinu er tekið við kössum á Holtavegi 28 á milli kl. 8-16 mánud. – fimmtud. og 8-15 á föstud. fram að síðasta skiladegi. Aðra móttökustaði er hægt að sjá hér efst á síðunni undir Móttökustaðir. Eins er hægt að finna þar upplýsingar um síðustu skiladaga bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni.
Já – stundum vantar hluti í kassana og þá er gott að hafa eitthvað til að fylla uppí með. Ófullgerðakassa geta sjálfboðaliðar klárað ef þarf.
Það má skrifa aldur og kyn á miða og líma á kassana.
Tekið er á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00-16:00 og föstudaga frá kl. 8:00-15:00. Frá og með 3. nóvember verður tekið við kössum frá 8:00-19:00.
Síðasti móttökudagur verkefnisins fyrir jólin 2025 er laugardagurinn 8. nóvember kl. 11:00 – 16:00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík (gegnt Langholtsskóla).
Allar nánari upplýsingar í síma: 588 8899 eða á facebook-síðunni.
Núna geta þeir sem eiga erfitt með að pakka skókössunum í gjafapappír eða hafa ekki tíma til þess, keypt tilbúna kassa. Kassinn er fallega myndskreyttur að utan og innan í kassanum er ljósmynd frá Íslandi og jólakveðja á úkraínsku til móttakanda sem segir jafnframt stuttlega frá Íslandi. Kassinn kostar 500 kr. og er hægt að kaupa á Holtavegi 28 í Reykjavík, i Axelsbúð á Akranesi og í Glerárkirkju á Akureyri.
Lokaskiladagar og móttökustaðir á landsbyggðinni fyrir árið 2025.
Akranes Tekið er á móti skókössum í safnaðarheimili Akraneskirkju. 27.-31. október á milli klukkan 10:00 – 15:00.
Á Akranesi er hægt að kaupa kassa í Axelsbúð á opnunartíma. (Axel 896-1979)
Tengiliður (ath aðeins fyrir Akranes) er Irena Rut Jónsdóttir (868-1383)
Tekið er á móti skókössum í Borgarneskirkju. Vegna veðurs þá breyttist dagsetningin og síðasti skiladagur er þriðjudagurinn 4. nóvember milli kl. 16:00-18:00.
Tengiliður er Heiðrún Helga (869-0082)
Tekið verður á móti skókössum á Átthagastofu Snæfellsbæjar, fimmtudaginn 30. október milli kl. 16:00-18:00.
Tengiliður er Sigurbjörg Jóhannesdóttir (843-0992)
Tekið verður á móti skókössum á Glerártorgi, laugardaginn 1. nóvember frá kl. 13:00-17:00.
Tengiliður er Jóhann Þorsteinsson (699-4115)
Einnig er hægt að skila skókössum beint til Flytjanda á Akureyri.
Hægt er að kaupa kassa í Glerárkirkju.
Tekið verður á móti skókössum í safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju, fimmtudaginn 30. október og föstudaginn 31. október frá kl. 10:00-16:00 báða dagana.
Tengiliður er Magnús Erlingsson (456-3171).
Tekið verður á móti skókössum í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju, fimmtudaginn 30. október frá kl. 16:00-18:00.
Tengiliðir eru Anna Husgaard Andreasen (663-0159) og Salbjörg Sigríður Nóadóttir (896-6650).
Tekið verður á móti skókössum í Stykkishólmskirkju þriðjudaginn 4. nóvember frá kl.16:oo-18:00.
Tengiliðir eru Ásta Sólveig Hjálmarsdóttir(898-9688) og Kristín Rós Jóhannesdóttir (893-1558).
Tekið verður á móti skókössum í Höfðaskóla, þriðjudaginn 28. október milli kl. 12:00-13:00.
Tengiliður er Helena (849-1539).
Tekið verður á móti skókössum í safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju, mánudaginn 3. nóvember frá kl. 18:00-20:00.
Tengiliður er Sigríður Ósk Bjarnadóttir (848-9093)
Tekið verður á móti skókössum í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju, miðvikudaginn 15. október frá kl. 16:30-18:30.
Tengiliðir eru Íris Grímsdóttir (691-2504) og María Guðrún Ljungberg (847-6267)
Tekið verður á móti skókössum í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgási 4, laugardaginn 25. október frá kl. 10:00-14:00.
Tengiliðir eru Guðrún Helga Elvarsdóttir (820-7611) ásamt Guðnýju Jónsdóttur, Hlín Stefánsdóttur og Dagmar Ósk Atladóttir.
Hægt er að hafa samband við Þorgeir í síma 847-9289 eða [email protected] til að skila skókössum á öðrum tíma
ATHUGIÐ BREYTTA DAGSETNINGU. Tekið verður á móti skókössum í Hafnarkirkju þriðjudaginn 4. nóvember frá kl. 18:00 – 21:00.
Tengiliður er Gunnar Stígur Reynisson (862-6567)
Tekið verður á móti skókössum í Landakirkju. Hún er að jafnaði opin virka daga milli kl. 9:00og 15:00. Síðasti skiladagur er föstudagurinn 31. október.
Tengiliðir eru Gísli Stefánsson (849-5754) og Trausti Mar Sigurðsson (823-5998)
Tekið verður á móti skókössum að Dynskálum 30, milli klukkan 14-17, föstudaginn 31. október.
Tengiliður er Sigurlína Magnúsdóttir (847-8378)
Tekið verður á móti skókössum í Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 5. nóvember milli klukkan 17-19.
Tengiliður er Salvar Geir Guðgeirsson (899-1974).
Ef þið óskið eftir að skila kössum á öðrum tímum er hægt að hafa samband við Ástu kirkjuvörð (690-0774)
Tekið verður á móti skókössum í Hátúni 36, húsi KFUM og KFUK í Reykjanesbæ fimmtudaginn 6. nóvember frá kl. 16:00-18:30.
Tengiliður Brynja Eiríksdóttir (845-4531)
Sandgerði Móttaka skókassa verður í Safnaðarheimilinu í Sandgerði þriðjudaginn 4. nóvember frá kl 17:30 – 21:00.
Tengiliður er Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson (895-2243) srsgs@simnet.
Jól í skókassa
hefur látið útbúa veggspjald og bækling sem má nota til að kynna verkefnið. Eins höfum við útbúið merkimiða sem má nota á skókassana til að gefa til kynna aldur og kyn viðtakanda. Öllum er frjálst að hlaða niður, prenta út og notast við þetta efni.