Undanfarna daga og vikur hafa margir fagurlega innpakkaðir skókassar með jólaglaðningum borist í hús KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík, til verkefnisins Jól í skókassa, sem er nú farið af stað í áttunda skipti.
Jól í skókassa gengur út á að fá fólk á öllum aldri til að útbúa og gefa skókassa með jólaglaðningi fyrir fátæk og munaðarlaus börn í Úkraínu. Leiðbeiningar um það hvernig skal útbúa skókassana er að finna á síðunni
www.skokassar.net. Í ár er sérstaklega óskað eftir prjónavörum á borð við vettlinga, húfur, sokka, og trefla sem gjafa til verkefnisins
Tekið er á móti skókössum virka daga milli kl. 9 og 17 í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík.
Lokaskiladagur verkefnisins í ár er laugardagurinn 12. nóvember í Reykjavík, og lokaskiladagur á landsbyggðinni er laugardagurinn 5. nóvember. Upplýsingar um móttökustaði víðs vegar um landið verða aðgengilegar von bráðar á heimasíðunni
www.skokassar.net.
Síðustu ár hafa fjölmargir tekið þátt í Jól í skókassa, og þúsundir skókassa með jólagjöfum hafa verið sendir með gámi til Úkraínu. Fulltrúar úr umsjónarhóp verkefnisins, Biblíuleshópnum Bleikjunni, hafa fylgt gjafagámnum eftir og séð um afhendingu kassanna til bágstaddra, m.a. munaðarlausra barna, á sjúkrahúsum og á fleiri stöðum. Í ár verður verkefnið með sama hætti.
Allir eru hvattir til að vera með í þessu góða framtaki!
Nánari upplýsingar má fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 og á
www.skokassar.net.