Langar þig til Úkraínu næsta sumar?
KFUM og KFUK á Íslandi hefur um árabil verið í vináttusamstarfi við KFUM í Úkraínu. Meðal annars hefur samstarfið falið í sér verkefnið Jól í skókassa, sem verður haldið með óbreyttum hætti í áttunda sinn nú í haust.
Í tilefni af þessu samstarfi hefur verið ákveðið að bjóða upp á 10 daga kynningarferð til Úkraínu í ágúst 2012. Ievgenii Zhabkovskyi, formaður KFUM í Úkraínu mun skipuleggja ferðina í samstarfi við KFUM og KFUK á Íslandi, og fylgja þátttakendum eftir meðan á ferðinni stendur.
Í kvöld, fimmtudaginn 19.september verður kynningarfundur vegna ferðarinnar í húsi félagsins að Holtavegi 28 í Reykjavík og hefst kl.17:30. Allir eru velkomnir.
Til stendur að í ferðinni heimsæki hópurinn heimili fyrir munaðarlaus börn og sjúkrahús, þangað sem skókassar frá Íslandi hafa borist fyrir tilstilli verkefnisins Jól í skókassa.
Einnig er ráðgert að þátttakendur fái tækifæri til að kynnast úkraínskri menningu.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn í kvöld og kynna sér þetta spennandi tækifæri.