Nú er undirbúningur fyrir Jól í skókassaverkefnið þetta haustið að fara í fullan gang. Lokaskiladagur verður 12. nóvember milli kl 11-16 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík, en nánari upplýsingar um aðra skilastaði kemur síðar.

Kynningarbæklingur fyrir verkefnið er væntanlegur úr prentun eftir þessa helgi. En hægt verður að nálgast eintök í KFUM og KFUK húsinu. Einnig er hægt að sækja bæklinginn á pdf formi hér – http://skokassar.net/skokassar-low.pdf.