Í þessari viku hafa margir lagt leið sína í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtaveg 28 í Reykjavík til að afhenda skókassa með jólagjöfum til verkefnisins Jól í skókassa (
www.skokassar.net). Gaman er að sjá að fólk á öllum aldri tekur þátt í að leggja skókassa með gjöfum til verkefnisins.
Á meðfylgjandi mynd sést ung stúlka sem kom færandi hendi í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í gær í fylgd móður sinnar, með fallegan skókassa íklæddan jólagjafapappir og fullan af góðum gjöfum. Hún lagði skókassann til verkefnisins Jól í skókassa, en kassinn hennar er einn af mörgum sem vera sendir af landi brott til Úkraínu fyrir jólin. Skókössunum sem safnast í ár verður meðal annars dreift á heimili fyrir munaðarlausa, barnaspítala og til barna einstæðra foreldra þar í landi.
Jól í skókassa, sem er alþjóðlegt verkefni og hóf göngu sína á Íslandi árið 2004 fyrir frumkvæði ungs fólks innan KFUM og KFUK , felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.
Nú eru aðeins 3 dagar í lokaskiladag verkefnisins Jól í skókassa í Reykjavík, sem er 6.nóvember. Þeir sem taka þátt í verkefninu verða sér úti um skókassa og fóðra kassann og lokið að utan með jólapappír og svo eru settar ýmsar vörur í kassann við hæfi í samræmi við aldur og kyn barns sem gjöfin er ætluð fyrir. Nánari upplýsingar um frágang kassanna, og tilhögun (auk almennra upplýsinga um verkefnið) er að finna á heimasíðu verkefnisins:
http://skokassar.net . Jól í skókassa er á Facebook
. Einnig er velkomið að hafa samband við Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 ef fyrirspurnir vakna.
Söfnun á skókössum er nú í fullum gangi. Hægt er að koma með skókassa í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK virka daga í vikunni, þar sem opnunartími er frá kl.9 til 17. Lokaskiladagur verkefnisins á höfuðborgarsvæðinu er laugardagurinn 6. nóvember, í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, 104 Reykjavík (gegnt Langholtsskóla), frá kl. 11:00 til kl. 16:00 og verða léttar veitingar í boði, auk þess sem boðið verður upp á myndasýningu frá afhendingu skókassa frá síðustu jólum í Úkraínu.