Kæru vinir.

Nú er októbermánuður hafinn og þá byrjar verkefnið okkar af fullum krafti.

Komnir eru skiladagar á eftirfarandi stöðum:

Reykjavík

Tekið er á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 alla virka daga kl. 9:00 – 17:00. Síðasti móttökudagur verkefnisins er laugardagurinn 10. nóvember 2018 kl. 11:00 – 16:00 á sama stað. Þeim sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins er bent á að skókassar þurfa að hafa borist til Reykjavíkur fyrir 10. nóvember.

Akranes

Hægt verður að skila skókössum í Akraneskirkju,  Alla virka daga frá 10-16.

Síðasti skiladagur verður

  • Föstudaginn 2. nóvember kl. 16:30 – 18:30.    ( hvíta húsinu, gamli Iðnskólinn)

Tengiliður (ath aðeins fyrir Akranes) er Irena Rut Jónsdóttir (868-1383).

Grundarfjörður

Tekið verður á móti skókössum í safnaðarheimili Grundafjarðarkirkju 26. október. á milli kl. 16:00 og 18:00.
Tengiliðir eru Anna Husgaard Andreasen (663-0159) og Salbjörg Sigríður Nóadóttir (896-6650).

Stykkishólmur (Facebooksíða)

Tekið verður á móti skókössum fimmtudaginn 1. nóvember frá kl. 16-18 í Stykkishólmskirkju. Léttar veitingar verða í boði.
Tengiliðir eru Ásdís Herrý Ásmundsdóttir (866-1932) og Margrét Kjartansdóttir í Helgafellssveit (893-1528).

Ísafjörður og Vestfirðir

Tekið verður á móti skókössum í Ísafjarðarkirkju frá 8 – 16 virka daga.  Síðasti skiladagur er mánudagurinn 5. nóvember.
Tengiliður er Lísbet Harðardóttir (697-4833).

Skagaströnd og nágrenni

Tekið verður á móti skókössum í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 3. nóvember frá kl 13-16.                                                                                                                                                                            Tengiliðir eru Aðalheiður M Steindórsdóttir (Heiða 865-3689) og Séra Bryndís Valbjarnardóttir (860-8845)

Ólafsfjörður

Tekið verður á móti skókössum í Ólafsfjarðarkirkju fimmtudaginn 25 október milli kl. 17 og 18:30. Tengiliður er Sigríður Munda Jónsdóttir (894-1507).

Akureyri og Norðurland

Tekið verður á móti skókössum á Glerártorgi á Akureyri (fyrir framan Nettó) á eftirfarandi dögum:

  • Laugardaginn 3. nóvember
  • Sunnudaginn 4. nóvember     á milli kl 10:00 og 19:00 báða dagana.

Tengiliður er Sindri Geir  (8668489).
Hægt er að vera í sambandi við hann til að skila skókössum á öðrum tímum.
Einnig er hægt að skila skókössum beint til Flytjanda á Akureyri.

Egilsstaðir og Austurland

Tekið verður á móti skókössum í Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 25. oktíber frá kl. 17-21.
Tengiliðir eru Hlín Stefánsdóttir (849-9537) og Þorgeir Arason (847-9289).

Höfn í Hornafirði og SA-land

Tekið verður á móti skókössum í hvítasunnukirkjunni Lifandi vatn, Hafnarbraut 59, á eftirfarandi dögum:

  • Sunnudaginn 4. nóvember frá kl. 16-18.

Þar verður jafnframt hægt að fá aðstoð við að pakka inn kössum í jólapappír.
Tengiliður er Helga (866-5734).

Vestmannaeyjar

Tekið verður á móti skókössum í Landakirkju. Hún er að jafnaði opin virka daga milli kl. 9 og 15. Síðasti skiladagur er fimmtudagurinn  1. nóvember.
Tengiliður er Gísli Stefánsson (849-5754).

Hella

Hægt að er koma skókössum til tengiliðar í grunnskólanum á Hellu á skólatíma eða fram til kl. 16 fimmtudaginn 1. nóvember.
Tengiliður er Sigurlína Magnúsdóttir (847-8378).

Selfoss

Tekið verður á móti skókössum í Selfosskirkju á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 9-16. Síðasti skiladagur er þriðjudagur  6. nóvember.
Tengiliður er Jóhanna Ýr (897-3706).

Suðurnes

Tekið verður á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK í Reykjanesbæ, Hátúni 36, fimmtudaginn 1. nóvember frá 16-18.
Tengiliður er Brynja Eiríksdóttir (845-4531/421-5678).