Avatar notanda

Halldór Elías

Halldór Elías hefur starfað fyrir KFUM og KFUK með hléum síðan 1991, þegar hann var fyrst starfsmaður í sumarbúðunum í Vatnaskógi.
Hann hefur leyst af sem æskulýðsfulltrúi, unnið að margvíslegum sérverkefnum, skrifað fræðsluefni og er ábyrgur fyrir handbók fyrir sumarbúðastarfsfólk sem kom fyrst út árið 2001 en hefur farið í gegnum tvær endurskoðanir síðan. Þá hefur Halldór annast námskeið fyrir sumarbúðastarfsfólk, haldið fyrirlestra og fræðsluerindi fyrir fólk á öllum aldri.

Halldór var framkvæmdastjóri Æskulýðsstarf kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum um tíma, framkvæmdastjóri safnaðarstarfs í Grensáskirkju, hefur skrifað kennsluefni fyrir Biskupsstofu, komið að starfsþjálfun djákna fyrir kirkjuna og staðið að námskeiðahaldi og endurmenntun presta og annars starfsfólks í kirkjunni.

Síðustu ár hefur Halldór verið prestur í Church of the Redeemer United Methodist Church í Cleveland Heights, Ohio og starfar auk þess sem framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags.

Halldór lauk BA prófi í djáknafræðum frá HÍ 1997 og hefur síðan öðlast tvær framhaldsgráður í guðfræði með áherslu á safnaðarstarf, skipulag og stjórnun. Hann fékk djáknavígslu í september 1997 og prestsvígslu í United Church of Christ í nóvember 2021.

2 Námskeið
58 Nemandi