K-ið í merki KFUM og KFUK er grundvallandi í öllu starfi félagsins. Á þessu námskeiði er fjallað trúaruppeldi í samhengi við starf KFUM og KFUK. Þá er stefna félagsins í trúfræðslumálum kynnt og skoðað hvernig hún hefur áhrif á starf leiðtoga í sumarbúðabúða- og deildarstarfi félagsins.
Farið er yfir nokkra grundvallarþætti hefðbundins kristins trúarskilnings og notast við efni sem var fyrir tveimur áratugum kallað rassvasaguðfræði sumarbúðastarfsfólks, en hefur elst mjög vel.
Fjórði hluti námskeiðsins skoðar efnisveitu KFUM og KFUK ásamt hugleiðingamöppu fyrir leiðtoga. Loks verður farið í hugleiðingagerð í fimmta hluta námskeiðsins þar sem þátttakendur munu útbúa eigin hugleiðingar með hliðsjón af efni hugleiðingamöppunnar.
Leiðbeinandi er Halldór Elías Guðmundsson, hægt er að ná í hann með tölvupósti á elli@kfum.is.