Starf í sumarbúðum er mjög fjölbreytt og um starfið gilda ekki bara reglur, starfsferlar og lög, heldur styðst starfið við fjölbreyttar hefðir og venjur sem móta starfið. Hjördís Rós Jónsdóttir félagsráðgjafi notast á þessu námskeiði við margskonar sögur og dæmi í sumarbúðastarfi til að þjálfa þátttakendur í faglegri ákvarðanatöku og kynna margskonar álitamál sem upp koma í starfinu.