
Þessum viðburði er lokið.
Vindáshlíð – Mæðgnaflokkur
Föstudagur 20. nóvember 2020 - Sunnudagur 22. nóvember 2020
Boðið verður upp á tvo Mæðgnaflokka í Vindáshlíð í ár! Fyrsti flokkurinn verður haldin 20.-22. nóvember, og seinni flokkurinn verður 4.-6. desember.
Mæðgur af öllum stærðum og gerðum á aldrinum 6-99 ára eru boðnar að fagna hátíðinni saman í Hlíðinni, og eiga yndislegar stundir með skemmtilegri jóladagskrá! (Það verður takmörkun á fjölda og sérstakar ráðstafanir í flokkunum vegna Covid faraldursins. )
Bjóðið mömmum og dætrum ykkar með til að fagna aðventunni saman!
Verð í flokkana er 13.200 kr á hvern þátttakanda.
Skráning fer fram í síma 588-8899 á skrifstofu KFUM og KFUK.