
Leikjanámskeið í Grindavíkurkirkju
Mánudagur 3. júní 2019 - Föstudagur 7. júní 2019
Markmið leikjanámskeiðanna er að bjóða börnum á aldrinum 6-9 ára upp á metnaðarfullt sumarstarf þar sem lögð er áhersla á aukinn þroska líkama, sálar og anda. Mikið er lagt upp úr því að mæta hverju barni á eigin forsendum og því mikil áhersla lögð á vináttu, kærleika, virðingu hvert fyrir öðru og unnið með kristið siðferði í hugsunum, orðum og gjörðum.