
Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK
22. janúar - 24. janúar
Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir 15-17 ára
Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir 15-17 ára byggist á tveimur sjálfstæðum helgarnámskeiðum á vetri. Á milli námskeiða fá þátttakendur verklega þjálfun á vettvangi starfsins.
Á námskeiðinu er boðið upp á fræðslu fyrir 15–17 ára ungleiðtoga (fædda 2003–2005). Með leiðtogaþjálfuninni viljum við auka hæfni og efla sjálfstraust. Við viljum hjálpa ungu fólki að vera leiðtogar í eigin lífi og auka getu þeirra til að takast á við þau fjölmörgu tækifæri sem þeim bjóðast. Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK er hugsuð fyrir alla sem hafa áhuga á að starfa sem leiðtogar í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK, bæði í sumar- og vetrarstarfi félagsins.
Hvað læra þátttakendur?
Fræðslunni er skipt upp í fjóra efnisflokka og þess gætt að á hverju námskeiði sé eitthvað kennt úr hverjum flokki.
K = kristin fræðsla
F = félagsmálafræðsla
U = ungmennalýðræði
M = mannrækt
Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir lengra komin
Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir lengra komin er framhaldsnámskeið fyrir þau sem hafa lokið einu ári í leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK. Við viljum hjálpa ungu fólki að vera leiðtogar í eigin lífi og auka getu þeirra til að takast á við þau fjölmörgu tækifæri sem þeim bjóðast. Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK er hugsuð fyrir alla sem hafa áhuga á að starfa sem leiðtogar í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK, bæði í sumar- og vetrarstarfi félagsins.
Skráning fer fram á skráningarsíðu KFUM og KFUK, www.sumarfjor.is, undir flokknum Vetrarstarf KFUM og KFUK. Nánari upplýsingar má fá hjá Hjördísi Rós verkefnastjóra í síma 588-8899 eða á hjordis@kfum.is.