
Jólaflokkur í Vindáshlíð
19. nóvember - 21. nóvember
Í ár verður boðið upp á tvo jólaflokka í Vindáshlíð sem munu svo sannarlega koma stelpunum í hátíðarskap!
Fyrri flokkurinn fyrir 9-11 ára stelpur verður haldin helgina 19.-21. nóvember, og seinni flokkurinn fyrir 12-14 ára stelpur verður haldin helgina 3.-5. desember.
Það verður mikil jólastemning í hlíðinni með skreytingum, bakstri, hugleiðingum, og stútfullri dagskrá í anda jólanna!
Hlökkum til að fagna aðventunni saman í hlíðinni fríðu!