
Afmælishátíð Vindáshlíðar
22. maí @ 14:00 - 17:00
Við fögnum því að það hefur verið sumarbúðarstarf í Vindáshlíð í heil 75 ár og því blásum við til Afmælishátíðar. Það eru allir hjartanlega velkomnir og tilvalið að taka smá forskot á sæluna sem verður í Hlíðinni í sumar og njóta saman á þessum yndislega degi. Það hafa einnig verið mikið um framkvæmdir og lagfæringar í Vindáshlíð svo þetta er tilvalið tækifæri að koma og sjá allar fínu breytingar okkar.
Dagskrá
14:00 Fánahylling
14:10 Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju
14:30 – 17:00 Afmælishátíðardagskrá
- Kaffiveitingar
- Göngur
- FOLF
- Ratleikur
- Brennó
- Hoppukastali
- Andlitsmálning
- Vinaarmbönd
- Margt fleira skemmtilegt…
Hver veit nema meðlimir Ljósbrots, kórs KFUK líti við og taki lagið fyrir okkur sem upphitun fyrir tónleika kvöldsins sem haldnir verða á Holtavegi 28 kl. 20:00 og verða til styrktar Vindáshlíð!
Verð
- 2.500 krónur á einstakling
- 0- 6 ára: ókeypis
- Hámark 10.000 krónur á fjölskyldu
Hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum á sama tíma og maður styrkir starfsemina.
Þessi viðburður veitir nýjum sem og eldri Hlíðarmeyjum, fjölskyldum og vinum tækifæri til að deila sögum og minningum sín á milli í yndislegu umhverfi okkar.
Hlökkum til að sjá sem flesta!