Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin sunnudaginn 4. júní næstkomandi í Vindáshlíð.
Tilvalið að taka smá forskot á sæluna sem verður í Hlíðinni í sumar og njóta saman á þessum yndislega degi. Sannkölluð sumargleði!
DAGSKRÁ
14:00 Fánahylling
14:10 Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð
14:30 – 17:00 Sumargleði og kaffisala
– Kaffiveitingar
– Göngur
– FOLF
– Ratleikur
– Brennó
– Hoppukastali
– Vinaarmbönd
– Margt fleira skemmtilegt…
VERÐ:
3000 á mann
0- 5 ára: ókeypis
Hámark 10.000 á fjölskyldur
Hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum á sama tíma og maður styrkir starfsemina.
Þessi viðburður veitir nýjum sem og eldri Hlíðarmeyjum, fjölskyldum og vinum tækifæri til að deila sögum og minningum sín á milli í yndislegu umhverfi okkar.
Hlökkum til að sjá sem flest!
Kær kveðja,
Stjórn Vindáshlíðar