Feðginaflokkur Vatnaskógar 28. – 30. apríl

Áhersla lögð á góðar samverustundir í Vatnaskógi bæði innandyra og úti.
Gönguferðir, föndrað, sungið, skemmt sér á bátum, í íþróttahúsinu , á kvöldvökum, á fræðslu-og samverustundum og ótalmargt fleira.
Verð í feðginaflokk er kr. 19.400 fyrir einstakling. Skráning fer fram hér!

Velkomin í feðginaflokk!

Hér eru nokkrar upplýsingar um flokkinn.

Mæting á staðinn
Gert er ráð fyrir að flestir komi á milli kl. 18:00 og 19:00.

Næg herbergi eru á staðnum og gert ráð fyrir að gestir velji sér herbergi þegar þau koma á staðinn.

Dagskráin hefst með kvöldverði kl. 19:00 á föstudeginum og lýkur eftir hádegi á sunnudeginum.

Hlökkum til að sjá ykkur í Skóginum góða.

Á dagskrá verða íþróttir, gönguferðir, kvöldvökur, fræðslustundir og margt fleira.

DAGSKRÁ Í FEÐGINAFLOKKI

Föstudagur 28. apríl
19:00   Kvöldmatur
20:00   Dagskrá
Gönguferð um staðinn
Bátar
Íþróttahús
21:30   Kvöldvaka í Gamla Skála
Kapellustund
Kvöldhressing

Laugardagur 29. apríl
8:30      Vakið
9:00      Morgunverður
9:30      Fræðslustund í Gamla
10:15   Fræðslustund fyrir feður
Dagskrá í íþróttahúsi fyrir stúlkur
12:00   Hádegisverður
13:00   Dagskrá:
Íþróttir,
Bátar,
Kökuskreyting
Smiðja
15:00   Kaffi
Útivera
Leikir
Heitir pottar
18:45   Hátíðarkvöldverður Matskála
20:00   Kvöldvaka að hætti hússins
21:30   Helgistund í Lindarrjóðri
Kvöldhressing í Matskála

Sunnudagur 30. apríl
9:00     Vakið
9:30     Morgunverður
10:00   Dagskrá
Íþróttahús
Bátar
11:45   Skógarmannaguðsþjónusta
12:30   Hádegisverður
14:00   Brottför

Nauðsynlegur farangur:
Sæng eða svefnpoki, lak, föt til skiptanna, íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem þið teljið nauðsynlegt.
Einnig er gott að hafa sundföt með í för en heitu pottarnir heilla marga.