Kaffisala Skógamanna verður að venju á sumardaginn fyrsta þann 20. apríl.
Kaffisalan hefst kl. 14:00 og stendur til 17:00 – frábærar veitingar að vanda og sumir segja þær bestu.
Um kvöldið verða svo glæsilegir tónleikar, allt hérna á Holtavegi 28, félagsheimili KFUM og KFUK á Íslandi.
Tónleikar hefjast kl. 20:00 – Meðal þeirra sem koma fram eru:
- Karlakór KFUM stjórnandi Ásta Haraldsdóttir, píanóleikari Antonía Hevesi
- Lára Ruth Clausen og Jakob Freyr Einarsson
- Eyjólfur Kristjánsson stórsöngvari
- Kynnir: Hinn síglaði Hreinn Pálsson
Allur ágóði af kaffisölunni og tónleikunum er til stuðnings nýjum matskála í Vatnaskógi.