Skógarmenn KFUM bjóða uppá fjölskylduflokk að vori í Vatnaskógi.
Flokkurinn verður dagana 31. mars til 2. apríl
Frábært tækifæri að njóta þess að vera saman í notalegu andrúmslofti Vatnaskógar að vori.
Í flokknum er boðið upp á afslappaða og uppbyggilega dagskrá.
Starfsmenn Vatnaskógar hugsa vel um þátttakendur, bæði í fæði og dagskrá og kapp er lagt á að allir skemmti sér vel. Flokkurinn er opin fyrir alla aldurshópa.
Dagskráin hefst á kvöldverði kl. 19:00 á föstudeginum og miðað er við að fjölskyldur ferðist á einkabílum á staðinn, ekki er boðið upp á rútuferðir.
Verð er kr. 14.500.- á mann en frítt er fyrir 6 ára og yngri. Hámarksverð fyrir fjölskyldu er kr. 43.000.-
Skráning fer fram hérna: https://sumarfjor.is/Slot.aspx?id=2193 Síðan um verða sendur greiðslulinkur í samræmi við fjölskyldustærð
Farangur:
Vert er að vera vel búin/n til að njóta dvalarinnar sem best:
Búnað til útiveru, s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt.
Sundföt (fyrir þá sem vilja fara í heita potta), íþróttaskó og föt til notkunar í íþróttahúsi.
Rúmföt (sæng eða svefnpoka og lak).
Annað sem hver og einn telur nauðsynlegt.
Dagskrá:
Föstudagur 31. mars
18:00 Svæðið opnar – Gestir koma sér fyrir, hver fjölskylda finnur sitt herbergi
19:00 Kvöldverður
20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála
21:00 Frjáls tími
• Kvöldhressing
• Bænastund í kapellu
• Íþróttahúsið opið
Laugardagur 1. apríl
08:30 Vakið
09:00 Morgunverður
09:30 Morgunstund
• Biblíulestur
• Fræðslustund foreldra
• Leikstund
• Íþróttahúsið opið
• Föndursmiðjan opin
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími
• Gönguferð
• Föndursmiðjan
• Íþróttahúsið opið
15:00 Síðdegiskaffi
15:30 Frjáls tími
• Íþróttir og leikir í íþróttahúsi
• Undirbúningur f. hæfileikasýningu á kvöldvöku
• Heitir pottar við íþróttahús
18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld
19:30 Kvöldvaka
21:00 Frjáls tími
• Kvöldhressing
• Kvöldganga / Bænastund
• Afslöppun í sal Birkiskála
Sunnudagur 2. apríl
Frá kl. 09:00 – 10:30 Morgunverður
10:00 Íþróttahúsið opið
10:30 Útivera
11:45 Lokastund
12:30 Hádegismatur
• Brottför