Aðventufundur AD KFUM og KFUK verður að þessu sinni fimmtudaginn 1. desember kl. 20.00 á Holtavegi.
Á fundinum rifjar Tinna Rós Steinsdóttir upp jólaminningu og Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur hefur hugvekju.
Ljósbrot – kvennakór KFUK og Karlakór KFUM syngja nokkur jólalög.
Basarnefnd KFUK sér um happdrætti.
Anna Magnúsdóttir og Guðmundur Jóhannsson stjórna fundi og Keith Reed annast píanóleik.
Kaffi og terta í lok fundar.
Fjölmennum og eigum saman góða aðventustund.