Vatnaskógur mun bjóða uppá fjölskylduflokk í Vatnaskógi 28.-30. október næstkomandi.

Fjölskylduflokkur í Vatnaskógi í fyrsta skipti að hausti.

Í Fjölskylduflokki er frábært tækifæri til að njóta þess að vera saman og efla tengslin í notalegu andrúmslofti.

Í flokknum er boðið uppá afslappaða og uppbyggilega dagskrá.

Starfsmenn staðarins hugsa vel um gesti, og kapp er lagt á að allir skemmti sér vel. Flokkurinn er opinn fyrir alla aldurshópa.

Dagskráin hefst á kvöldverði kl. 19:00 á föstudeginum og miðað er við að fjölskyldur ferðist á einkabílum á staðinn, ekki er boðið upp á rútuferðir.

Verð í flokkinn er 15.000 kr. á mann en frítt er fyrir 6 ára og yngri.

Hámarksverð fyrir fjölskyldu er 42.000 kr. ATH: að skrá kennitölur allra í fjölskyldunni í athugasemdir.

Flokknum hefur verið aflýst! 

Næsti fjölskylduflokkur verður 10. – 12. febrúar 2023 – nánar kynnt síðar