Stjórn Ölvers auglýsir eftir verkefnastjóra fyrir sumarið 2021. Um er að ræða tímabundið 20% starf frá 15.maí til 1. september.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við undirbúning sumarstarfsins
- Matarinnkaup
- Innkaup eftir þörfum, m.a. á skrifstofuvarningi og föndri
- Sinna og stýra brottförum og heimkomum barna í og úr Ölveri
- Tengiliður stjórnar og skrifstofu
- Vera forstöðu- og ráðsfólki innan handar við starfsemi sumarbúðanna
- Samskipti við foreldra
- Skipulagning og aðstoð við þrif á milli flokka
- Koma starfsmönnum til og frá vinnustað eftir þörfum
- Önnur tilfallandi verkefni frá stjórn
Hæfnis- og menntunarkröfur:
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Áhugi og metnaður á vinnu í kristilegu æskulýðsstarfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Bílpróf skilyrði
- Reynsla af starfsmannamálum æskileg
- Reynsla af sumarbúðastarfi æskileg
Umsóknir óskast, sendar á netfangið olver@kfum.is. Óskað er eftir ferilskrá ásamt kynningarbréfi með vísun í umsagnaraðila. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2021.
Nánari upplýsingar um starfið veita Erla Björg Káradóttir, formaður stjórnar Ölvers, s: 899-3738 og Alla Rún Rúnarsdóttir, varaformaður stjórnar Ölvers, s: 848-9597.
Ölver stendur á skemmtilegum stað í nágrenni Hafnarfjalls og eru þar starfræktar sumarbúðir fyrir stúlkur og fer stærsti hluti starfseminnar fram yfir sumartímann. Hver dvalarflokkur er 4–7 dagar og komast um 46 stúlkur í hvern flokk. Starfið nýtur mikilla vinsælda. Sumarið 2020 komu tæplega 500 stúlkur í Ölver ásamt drengjum sem sóttu leikjanámskeið í blönduðum flokki í lok sumars.
Ölver er hluti af fjölbreyttu starfi KFUM og KFUK á Íslandi. KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama, sálar og anda. KFUM og KFUK stendur fyrir faglegu barna- og æskulýðsstarfi en félagið starfrækir fimm sumarbúðir og um 30 æskulýðsdeildir víðs vegar um landið, auk þess að standa fyrir leiðtogaþjálfun og fjölbreyttum viðburðum allt árið um kring. Aðferð Jesú Krists, að mæta hverri manneskju af umhyggju, kærleika og virðingu er í hávegum höfð í öllu starfi KFUM og KFUK.
-Stjórn Ölvers-