Félagsfólk er boðið velkomið á aðalfund KFUM og KFUK á Íslandi sem haldinn verður laugardaginn 16. apríl 2016 í húsi félagsins að Holtavegi 28 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 10:30 en þá verður heitt á könnunni og kjörgögn verða afhent. Þeir sem ekki hafa greitt árgjald félagsins hafa tækifæri til að gera það við innganginn. Formleg dagskrá hefst síðan kl. 11:00 og stendur til kl. 15:00. Hana má sjá hér að neðan.
Dagskrá:
10:30 Kjörgögn afhent – heitt á könnunni
11:00 Ávarp formanns og setning aðalfundar: Auður Pálsdóttir
Hugvekja og bæn: Sigurbjörn Þorkelsson
11:30 Aðalfundarstörf:
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara
b) Starfsskýrsla stjórnar
c) Reikninga kynntir og lagðir fram til samþykktar
d) Fjárhags- og starfsáætlun
e) Stjórnarkjör
f) Ungmennaráð KFUM og KFUK kynnir umræður frá Landsþingi unga fólksins
g) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
h) Ákvörðun ársgjalds
i) Önnur mál
Boðið verður upp á veitingar meðan á fundi stendur.
Áætlað er að fundinum verði lokið fyrir kl. 15:00.
Vonandi sjáum við sem flesta á aðalfundi KFUM og KFUK á Íslandi.