Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga og áhugasamt félagsfólk að sækja um Wake Up, Green Up, námskeið um þátttöku ungs fólks í umhverfismálum.

Nafn viðburðarWake Up, Green Up
Skipuleggjandi: Evrópa unga fólksins
Dagsetning: 2-8 júní 2016
Staðsetning: Lyon, Frakkland
Kostnaður sem fellur á þátttakanda: 10% af ferðakostnaði
Aldurstakmörk18 ára og eldri 

Nánari upplýsingar:
Þetta námskeið fjallar þátttöku ungs fólks í umhverfismálum. Þar veður farið yfir tengingu á milli ækulýðsstarfa og umhverfismála. Gefið þátttakendum tækifæri og verkfæri til að fá ungt fólk til að hafa opin augu fyrir umhverfinu. Dagskrána og frekari upplýsingar um efni námskeiðsins má hálgast hér.

ATH! Umsóknafrestur er til 15. apríl 2016.

Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.

  • Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
  • Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
  • Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
  • Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
  • Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.

Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Heiðbjörtu með tölvupósti á heidbjort(hjá)kfum.is

Umsókn um þátttöku í ráðstefnunni

[form utlond]