Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga og áhugasamt félagsfólk að sækja um The Sound of Music II, námskeið um það hvernig hægt er að nota tónlist í ólíkum verkefnum með ungu fólki.
Nafn viðburðar: The Sound of Music II
Skipuleggjandi: Evrópa unga fólksins
Dagsetning: 11.-18. maí 2016
Staðsetning: Málaga, Spáni
Kostnaður sem fellur á þátttakanda: 10% af ferðakostnaði
Aldurstakmörk: 18 ára og eldri
Nánari upplýsingar:
Þetta námskeið fjallar um áhrif tónlistar og notkun í æskulýðsstarfi. Markmiðið er að auka hæfni þátttakenda til að nota tónlist í slíku starfi. Þátttakendur taka fullan þátt í námskeiðinu, þ.e. ekki er einungis um fyrirlestra að ræða. Dagskrána og frekari upplýsingar um efni námskeiðsins má hálgast hér.
ATH! Umsóknafrestur er til 25. mars 2016.
Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.
-Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
-Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
-Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
-Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
-Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Önnu Elísu með tölvupósti á annae89(hjá)gmail.com.
Umsókn um þátttöku í ráðstefnunni
[form utlond]