Aðal- og ársfundir starfseininga KFUM og KFUK á Íslandi verða flestir haldnir í marsmánuði og hefjast kl. 20:00.
Á aðal- og ársfundum fara fram venjuleg aðalfundarstörf, starfsskýrslur kynntar, endurskoðaðir reikningar lagðir fram, fjárhagsáætlanir kynntar, kosið er í stjórnir og umræður um starfið fara fram. Allir fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi hafa rétt til setu í aðal- og ársfundum starfsstöðva félagsins.
Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna á fundina og láta sig varða um starf félagsins.
Dagskrá funda:
1. mars – þriðjudagur
Aðalfundur KFUM og KFUK í Reykjanesbæ
Haldinn í félagsheimilinu Hátúni 36
7. mars – mánudagur
Aðalfundur Vinagarðs, leikskóla KFUM og KFUK
Haldinn á Vinagarði, Holtavegi 28
8. mars – þriðjudagur
Aðalfundur Vindáshlíðar
Haldinn á Holtavegi 28 – kaffiteríu
9. mars – miðvikudagur
Aðalfundur Kaldársels
Haldinn á Holtavegi 28 – kaffiteríu
10. mars – fimmtudagur
Aðalfundur Ölvers
Haldinn á Holtavegi 28 – kaffiteríu
14. mars – mánudagur
Aðalfundur KFUM og KFUK á Akureyri og aðalfundur Hólavatns
Haldinn í félagsheimilinu Sunnuhlíð
15. mars – þriðjudagur
Ársfundur Jól í skókassa
Haldinn á Holtavegi 28
30. mars – miðvikudagur
Aðalfundur KFUM og KFUK í Vestmannaeyjum
Haldinn í Landakirkju kl. 12:00
31. mars – fimmtudagur
Aðalfundur Vatnaskógar
Haldinn á Holtavegi 28 – kaffiteríu og stóra sal
Hefst kl. 19:00 á súpu.
4. apríl – mánudagur
Ársfundur Karlakórs KFUM
Haldinn á Holtavegi 28 – kaffiteríu og stóra sal
Aðalfundur KFUM og KFUK á Íslandi fer fram laugardaginn 16. apríl 2016 á Holtavegi 28 kl. 11:00 – 15:00.