Talið er að um 1000  manns hafi heimsótt Vatnaskóg um helgina en óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við gestina.

Fjölmargir dagskrárliðir voru í boði. Meðal annars voru tónleikar og þar sem þau Pétur Ben, Regína Ósk og Friðrik Ómar slógu í gegn. Þá var varðeldur tendraður við brekkuna fyrir framan íþróttahús staðarins og tekið hraustlega undir brekkusöng. Ljúffengar veitingar í Café Lindarrjóðri, vatnafjör, unglingadagskrá, leiksýningin Hafdís og Klemmi og leyndardómar háloftsins sýnt. – og hæfileikasýning barnanna, fræðslustundir fyrir fullorðna,  fjörugar kvöldvökur, guðsþjónusta, grillveisla og ýmislegt fleira.
Gestir á Sæludögum gistu ýmist í tjöldum, húsvögnum eða innandyra en einnig voru töluvert margir sem komu dagsheimsóknir.
Skógarmenn þakka Sæludagagestum fyrir komuna, og einnig eru öllum sjálfboðaliðum og starfsmönnum sem unnu að undirbúningi, framkvæmd og frágangi hátíðarinnar þakkað kærlega fyrir sitt framlag í að láta hana verða að veruleika.

Þrátt fyrir að hátíðin hafi gengið vel fyrir sig þá er miklvægt að fá viðbrögð sæludagagesta. Hér möguleiki að taka þátt í könnun þar sem hægt er að svara nokkrum spurningum og hjálpa forsvarsmönnum Sæludaga til að gera hátíðina betri og laga það sem betur má fara. Betur sjá augu en auga.

ATHUGIÐ: SÍÐASTI MÖGULEIKI AÐ SVARA ÞESSARI KÖNNUN VAR 20. ÁGÚST 2015