Starfsvið:

  • Fræðsla og kynning verkefna á landsvísu.
  • Virk þátttaka við stefnumótun, þróun og áætlanagerð út frá málefnaskrá ÆV.
  • Önnur verkefni í samráði við formann stjórnar ÆV.

Helstu verkefni Æskulýðsvettvangssins:

  • Mannréttindafræðsla Kompáss
  • Innleiðing siðareglna ÆV
  • Öryggi barna og ungmenna
    – Verndum þau námskeið
    – Sakavottorð ÆV
    – Samskipti við fagráð ÆV um kynferðisofbeldi
    – Samskipti við ráðgjafahóp um einelti
  • Önnur fræðsla
    – Eineltismál
    – Kynferðisofbeldi
    – Herferð gegn hatursáróðri á netinu
    – Félagsmálafræðsla
    – Þátttaka í alþjóðastarfi
    – Annað úr málaskrá ÆV
  • Umsjá heimasíðu og skráningarkerfis
  • Útgáfa ÆV
  • Önnur verkefni sem stjórn felur viðkomandi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Lipurð í samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar með áherslu á frumkvæði, samskiptahæfni og skipuleg vinnubrögð. Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfileika til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Reynsla af æskulýðsstarfi eða öðru sjálfboðaliðastarfi er æskileg.

Umsóknarfrestur er til 15. maí og skulu umsóknir berast á netfangið hermann@skatar.is.