KFUM og KFUK stendur fyrir flugeldasölu á Holtavegi 28, dagana 28.-31.desember, í kjallara í suðurenda húsins. Flugeldasalan er mikilvægur liður í fjáröflun félagsins.
Leggjum okkar að mörkum og kaupum flugeldana hjá KFUM og KFUK.
Opnunartímar eru eftirfarandi:
28. desember kl. 12-22
29.desember kl. 10-22
30. desember kl. 10-22
31. desember 10-16
Þar verður hægt að festa kaup á flugeldum, bombum, blysum, tertum, stjörnuljósum og fleiru. Mikilvægt er að gæta varúðar við meðferð flugelda og stjörnuljósa og kynna sér nauðsynlegar öryggisreglur tengdar þeim.
Allur ágóði flugeldasölunnar rennur til starfsemi KFUM og KFUK á Íslandi.
Verið hjartanlega velkomin.