Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga og áhugasamt félagsfólk að sækja um þjálfunarnámskeið sem haldið verður í Nairobi í Kenýa í lok janúar – byrjun febrúar.
Nafn viðburðar: AFRICA-EUROPE Training Course for Youth Organisations
Skipuleggjandi: North-South Centre of the Council of Europe
Dagsetning: 25. janúar – 1. febrúar 2015
Staðsetning: Nairobí, Kenýa.
Kostnaður sem fellur á þátttakanda: Umsýslugjald 10.000 kr., vegabréfsáritun (um 6000 kr.) og mögulega kostnaður við bólusetningu.
Aldurstakmörk: 18 -30 ára
Umsóknarfrestur: 4. nóvember 2014.
Nánari upplýsingar:
Námskeiðið er ætlað fyrir leiðtoga innan æskulýðssamtaka. Markmiðið er að styrkja samtökin sem samfélagsaðilar og stuðla að alþjóðlegu samstarfi með sameiginlegum skilningi milli landa.
Námskeiðið fer aðallega fram á ensku. Um helmingur þátttakenda kemur frá æskulýðssamtökum innan Evrópu og um helmingur frá æskulýðssamtökum innan Afríku. Þátttakendur greiða sjálfir kostnað vegna vegabréfsáritunar sem er unnt að fá á flugvellinum í Nairobi og mögulegan kostnað vegna bólusetninga. Þátttakendur greiða 10.000 kr. umsýslugjaldi til KFUM og KFUK á Íslandi. Annar kostnaður vegna ferðalaga, gistingar og fæðis lendir ekki á þátttakendum.
Hér má lesa nánar um námskeiðið:
http://www.coe.int/t/dg4/nscentre/Source/Youth/Call_for_participants_10th_AECT.pdf
Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.
-Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
-Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
-Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
-Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
-Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Birgi með tölvupósti á birgir(hjá)kfum.is
Umsókn um þátttöku á námskeiðinu
[form utlond]