Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga til að sækja um þátttöku á námskeiðinu Young European Leaders for Change sem haldið verður í Pristína í Kosovo í júlí nk. Á námskeiðinu kemur saman hópur ungs fólks frá 10 Evrópulöndum til þess að læra um hlutverk leiðtogans í fjölmenningarsamfélagi nútímans.
Nafn viðburðar: Young European Leaders for Change
Skipuleggjandi: Encompass/Evrópa unga fólksins
Dagsetning: 13. – 18. júlí 2014
Staðsetning: Pristína, Kosovo
Fjöldi þátttakenda frá KFUM og KFUK á Íslandi: 1
Kostnaður sem fellur á þátttakanda: 15.000 kr. ásamt 30% af ferðakostnaði
Aldurstakmörk: 18-19 ára
Nánari upplýsingar:
Námskeiðið leggur áherslu á tvennt, annars vegar að auka leiðtogahæfileika ungs fólks og hinsvegar að skoða borgaralega vitund í fjölmenningarsamfélögum Evrópu. Markmiðið er að víkka sjóndeildarhring þátttakenda. Notast er bæði við formlegar og óformlegar aðferðir eins og vinnustofur, fyrirlestra, umræður o.fl. Einnig munu þátttakendur fá hjálp við að gera drög að verkefnum sem væri unnt að koma af stað í heimalöndum þátttakenda. Námskeiðið fer fram á ensku.
Þátttakendur verða 26 talsins frá 10 Evrópulöndum. Hámarksaldur þátttakenda er 19 ár og lágmarksaldur 16 ár. Fulltrúi KFUM og KFUK á Íslandi yrði þó að lágmarki 18 ára.
Skipuleggjendur (Encompass í samvinnu við Youth in Action) greiða fæði og uppihald á staðnum ásamt 70% af ferðakostnaði. Kostnaður þátttakenda er 15.000 kr. (5.000 kr. þátttökugjald til Evrópu unga fólksins og 10.000 kr. umsýslugjald til KFUM og KFUK á Íslandi) ásamt 30% af ferðakostnaði (trúlega 30-40 þúsund kr.).
Umsóknarfrestur: 23. mars 2014
Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.
-Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
-Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
-Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
-Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
-Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Birgi með tölvupósti á birgir(hjá)kfum.is
Umsókn um þátttöku á námskeiðinu
[form utlond]