Föstudaginn 7. mars kl. 20 á Kirkjustræti 2 verður fundur á vegum Hjálpræðishersins með yfirskriftina Samstaða með konum í Egyptalandi.
Efni fundarins, sem er á vegum kvenna frá fjölmörgum kristnum trúfélögum og hreyfingum, er tileinkað konum í Egyptalandi. Ávörp flytja Sigríður Schram, kennari, og Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur, útfrá bæði fræðilegri og persónulegri nálgun. Sýndar verða myndir frá Egyptalandi og hlustað eftir fjölbreyttum röddum kvenna. Tónlistarflutningur er í höndum Kvennabands Hjálpræðishersins.
Sýnum samstöðu í söng og bæn