Næsta námskeið verður haldið 30. október kl. 18.00 – 21.00 í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28.
Skráning og upplýsingar eru í síma 588 – 8899 eða hjá petra@kfum.is. Skráningafrestur rennur út 29. október kl. 16.00. Náist ekki 12 manna skráning fellur námskeiðið niður. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Námskeiðið er byggt á efni bókarinnar Verndum þau og fjallar um hvernig bregðast eigi við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og unglingum hjá sveitarfélögum, íþróttafélögum, æskulýðsfélögum og öðrum þeim sem áhuga hafa. Æskulýðsvettvangurinn gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan ÆV sæki námskeiðið.
Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir MSc í sálfræði, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.
Á námskeiðinu er farið yfir: Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar. Frætt er um hverja tegund ofbeldis fyrir sig, tíðni ofbeldis og hverjir séu líklegastir gerendur samkvæmt rannsóknum.
Hver einkenni ofbeldis eru og hvernig og hvert skuli tilkynna grun um að barn búi við ofbeldi. Kynntar eru verklagsreglur og verkferlar.
Hvernig skuli taka á móti ofbeldisfrásögn. Slíkt er jafn mikilvægt og að kunna fyrstu hjálp, ef slys ber að höndum.
Reglur í samskiptum við börnin. Ein mikilvægasta reglan er að forðast aðstæður þar sem starfsmaður er einn með barninu.
Ýmis atriði sem vinnuveitendur þurfa að hafa í huga, eins og vandað ráðningarferli, að fá leyfi til að afla upplýsinga úr sakaskrá, og að kynna reglur og verkferla fyrir starfsfólki til þess að tryggja gæði starfsins.
Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.