Sunnudagskvöldið 3. febrúar verður sunnudagssamkoma í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 20.
Yfirskrift kvöldsins er: Orð Guðs vinnur verk sitt (Jes. 55:6-11).
Við megum treysta því að orð Guðs beri ávöxt á sínum tíma.
Ræðumaður kvöldsins er Gunnar Jóhannes Gunnarsson.
Tónlist, söngur og samkomustjórn er í höndum Hilmars Einarssonar og félaga.
Allir hjartanlega velkomnir.