Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga, sérstaklega leiðtoga í sumbúðarstarfi félagsins, að sækja um námskeið sem haldið verður á Laugum í Sælingsdal í apríl.

Nafn viðburðar: SOAP 2013: Sports, Outdoor Activites, Participation.
Skipuleggjandi: Evrópa unga fólksins.
Dagsetning: 21. – 28. apríl 2013.
Staðsetning: Laugar í Sælingsdal, Ísland
Fjöldi fulltrúa frá KFUM og KFUK á Íslandi: 1 – 2
Kostnaður sem fellur á þátttakanda: 2500 kr.
Aldurstakmörk: Engin.
Nánari upplýsingar:
Þetta námskeið er hugsað fyrir æskulýðsleiðtoga sem starfa sem ungu fólki í íþróttum og útivist.
Helstu markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri að nýta íþróttir og útivist sem tæki til lærdóms í starfi með ungu fólki. Þátttakendum gefst einnig tækifæri til að kynnast aðilum frá öðrum smáþjóðum í Evrópu sem einnig nýta íþróttir og útivist í starfi með ungu fólki. Fulltrúar frá Kýpur, Írlandi, Liechtenstein, Lúxemborg, Möltu og Íslandi munu taka þátt í þessu námskeiði og á Ísland frátækið sæti.

Þátttökugjald upp á 2500 kr. fellur á þátttakanda. Fæði og gisting er greitt af Evrópusambandinu.

ATH! Umsónarfrestur rennur út miðvikudaginn 6. febrúar.

Tekið skal fram að leiðtogar sem stefna á störf í sumarbúðum KFUM og KFUK sumarið 2013 ganga fyrir aðra umsækjendur.

Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.

-Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
-Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
-Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
-Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
-Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.

Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Hildi Björgu með tölvupósti á hbg18(hjá)hi.is.

Umsókn um þátttöku í ráðstefnunni

[form utlond]