Þriðjudaginn 8. janúar verður fyrsti AD KFUK fundur ársins á Holtavegi 28 kl. 20:00.
Yfirskrift fundarins að þessu sinni er: Guð mætti mér þar. Arna Ingólfsdóttir, Ragnhildur Gunnarsdóttir og Rósa Einarsdóttir munu deila vitnisburði sínum með fundargestum.
Kaffi og kaffiveitingar í lok fundar.
Allar konur eru hjartanlega velkomnar.