
Hin árlega flugeldasala KFUM og KFUK verður 28. – 31. desember í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Flugeldasalan verður staðsett í kjallara í suðurenda hússins, gegnt leikskólanum Vinagarði.
Þar verður hægt að festa kaup á flugeldum, bombum, blysum, tertum, stjörnuljósum og fleiru. Mikilvægt er að gæta varúðar við meðferð flugelda og stjörnuljósa og kynna sér nauðsynlegar öryggisreglur tengdar þeim.
Opnunartímar verða eftirfarandi:
Föstudaginn 28. desember frá kl. 16 – 22
Laugardaginn 29. desember frá kl. 16 – 22
Sunnudaginn 30. desember frá kl. 13 – 22
Mánudaginn 31. desember frá kl. 10 – 16
Allur ágóði flugeldasölunnar rennur til starfsemi KFUM og KFUK á Íslandi.
Gegn framvísun afklippunnar á baksíðu þriðja tölublaðs Fréttabréfs KFUM og KFUK fæst 2.000 króna kaupauki ef keypt er fyrir 10.000 krónur.
Verið hjartanlega velkomin.