Þriðjudaginn 30. október, verður haldinn fundur hjá AD KFUK í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 kl. 20.
Fundurinn ber yfirskriftina: Konur eru konum bestar – örnámskeið um sjálfstyrkingu. Umsjón með fundinum hefur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.
Að loknum fundi verða léttar kaffiveitinga á boðstólum.
Allar konur eru hjartanlega velkomnar á fundinn.