Vinagarður, leikskóli KFUM og KFUK, Holtavegi 28, verður heimsóttur á AD KFUM fundi fimmtudagskvöldið 11. október kl. 20.
Umsjón hefur Magnús Fjalar Guðmundsson stjórnarformaður Vinagarðs og María Sighvatsdóttir leikskólastjóri. Guðmundur Ingi Leifsson, fyrrum skólastjóri, mun flytja hugvekju.
Boðið verður upp á kaffi og kaffiveitingar.
Allir karlmenn eru hjartanlega velkomnir.