Miðvikudaginn 10. október  kl. 17 hefst Gítarnámskeið KFUM og KFUK, í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28. Námskeiðið er í alls 8 skipti (klukkustund í senn) og er bæði ætlað fyrir byrjendur, og einnig þá sem kunna eitthvað fyrir sér á hljóðfærið. Kennari námskeiðsins er Hannes Þ. Guðrúnarson, gítarkennari og tónlistarmaður.

Leiðtogum í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK býðst að sækja námskeiðið gegn 2.500 króna greiðslu, en almennt námskeiðsgjald er kr.14.500. Þátttakendur þurfa að koma með eigið hljóðfæri.

Skráning er hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 og á netfanginu skrifstofa@kfum.is.

Allir sem eru áhugasamir og hafa gaman að tónlist eru hvattir til að sækja námskeiðið. Gítartónlist hefur gegnum árin nýst vel í starfi KFUM og KFUK, bæði í sumar-og vetrarstarfi. Nánari upplýsingar um námskeiðið er hægt að fá hjá Hannesi hannesg@mi.is eða í síma 847 6964.